top of page
20251004_083432.jpg

Lausnir
VATNSGÆÐA

Við bjóðum upp á heildarlausnir, þjónustu og búnað fyrir rauntímamælingar. Kynntu þér hvað við höfum uppá að bjóða.

Þjónustusvið

Verndun vatns með rauntíma innsýn

Frá yfirborðsvatni til grunnvatns, frá skólpi til iðnaðarlosunar – við bjóðum upp á verkfæri til að mæla, skilja og vernda vatn í öllum sínum myndum.

Applications.png

Umhverfi

20250509_141913.jpg
20251004_091353.jpg

Yfirborðsvatn

Með sjálfvirkum mælitækjum fylgjumst við stöðugt með vatnsborði, sýrustigi, uppleystu súrefni, gruggi, næringarefnum og lífrænum efnum í yfirborðsvatni. Gögnin nýtast bæði sveitarfélögum, stofnunum og ráðgjöfum til vöktunar, skráningar og greiningar á ástandi vatnakerfa.

20231109_161325.jpg

Grunnvatn

Sjálfvirk grunnvatnsvöktun nær m.a. til vatnsdýptar, vatnshita og leiðni. Varanleg rauntímavöktun styrkir ákvarðanatöku í verndun vatnsbóla og tryggir sjálfbæra nýtingu auðlindarinnar.

20250519_151128_edited.jpg

Sjór og hafnir

Sjálfvirk vöktun í höfnum sameinar mælingar á saurgerlum, olíu og öðrum vatnsgæðavísum í sjó. Rauntímagögnin gefa skýra mynd af ástandi vatnsins, auðvelda ákvarðanatöku og stytta viðbragð mengunaratvikum.

Iðnaður

20250303_095352.jpg
20240430_113558.jpg

Skólphreinsistöðvar

Vatnsgæði bjóða heildarlausnir fyrir vöktun skólphreinsistöðva, frá inntaki til útfalls. Rauntímagögnin gera rekstraraðilum kleift að bregðast fyrr við, hámarka hreinsun og uppfylla kröfur heilbrigðis- og umhverfisyfirvalda. Við sinn­um einnig reglubundnum sýnatökum og bjóðum upp á sjálfvirkan sýnatökubúnað sem einfaldar reglugerðarfylgni og vöktun.

20251023_165037.jpg

Fráveitukerfi

Í fráveitukerfum bjóðum við nákvæmar rennslismælingar og rauntímavöktun á vatnsgæðum og olíu. Gögnin hjálpa til við daglegan rekstur með því að greina stíflur og önnur frávik í rauntíma, rekja uppruna mengunar, greina rangar tengingar og styðja við skipulagða viðhaldsvinnu og forgangsröðun fjárfestinga.

20250826_210813.jpg

Olíuskiljur

Við bjóðum heildarlausnir í vöktun olíuskilja - vottaðan búnað, uppsetningu, viðhald og fjarvöktun - sem tryggir samræmi við EN 858 og Leiðbeiningar Umhverfisstofnunar.

20240628_142515.jpg

Fiskeldi

Í fiskeldi bjóðum við upp á vatnsgæðamælingar með fjölpróbumælum sem geta greint fjölmargar breytur í einu – til dæmis grunnmælibreytur eins og uppleyst súrefni, hitastig, pH, leiðni og grugg. Að auki bjóðum við sérhæfðar mælingar á borð við TAN, TOC, COD, BOD o.fl. Traust gögn í rauntíma hjálpa til við að hámarka velferð fiska og draga úr rekstraráhættu.

Vörur

20220501_140935.jpg
20251113_151226_edited.jpg

Þrýsi- og dýptarnemar

Vatnsgæði bíður þrýsti- og dýptararnema í hæðsta mögulega gæðaflokki frá KELLER í Sviss. KELLER sameinar nákvæmni, áreiðanleika og sveigjanlegar lausnir fyrir krefjandi verkefni í vatns-, umhverfis- og iðnaðarrekstri.

20250911_093943_edited.jpg

Fjölprópumælar

Fjölpróbumælar okkar sameina marga skynjara í einu tæki og gera kleift að fylgjast í rauntíma með lykilbreytum eins og hitastigi, pH, uppleystu súrefni, gruggi, næringarefnum og lífrænu álagi (t.d. BOD/COD). Mælarnir eru sérsniðnir að hverju vatnsvistkerfi eða ferli, henta bæði í yfirborðsvatni, fráveitu og fiskeldi og skila stöðugum gögnum inn á vefgátt Vatnsgæða, þar sem rekstraraðilar fá skýra yfirsýn og geta brugðist fljótt við frávikum. Allar okkar lausnir eru tengjanlegar við stjórnkerfi með stöðluðum tengingum.

20250303_095307.jpg

Olía í vatni

Við bjóðum sérhæfðan búnað til vöktunar á olíu í vatni sem nemur mjög lága styrki í rauntíma. Lausnirnar henta m.a. fyrir hafnir, virkjanir, fráveitu og iðnaðarafrennsli og gera kleift að greina leka og frávik áður en þau þróast yfir í alvarlega mengun.

Wasser Schaum

Áreiðanleg gögn leggja grunn að betri vatnsstjórnun.
Við tengjum nákvæmar mælingar við innsýn — og gerir varanlegar umbætur fyrir fólk, ferla og umhverfi mögulegar.

bottom of page