top of page
20251023_165037.jpg

Rennslis-mælingar í fráveitukerfum

Vatnsgæði býður heildarlausnir fyrir rennslismælingar í fráveitukerfum – frá skammtímamælingum til varanlegrar vöktunar. Við mælum rennsli í skolp-, ofanvatns- og sameinuðum kerfum og veitum skýra mynd af álagspunktum, innsigi og virkni kerfisins.

Bætt innsýn í kerfið

Raunverulegar mælingar sýna hvernig kerfið hegðar sér í þurru veðri, við rigningu og við snjóbráðnun.

Stuðningur við hönnun og skipulagningu

Traust gögn liggja að baki nýjum fjárfestingarverkefnum, uppfærslum á skólphreinsistöðvum, stærðargráðum pípa, hönnun dælustöðva og geymslu- eða jöfnunarlausnum. Með nákvæmari gögnum má koma í veg fyrir offjárfestingu í innviðum og spara veitufyrirtækjum og sveitarfélögum hár fárhæðir.

Rekstrarhagkvæmni

Með því að skilja raunverulega álag geta rekstraraðilar hámarkað nýtingu núverandi eigna, forgangsraðað viðhaldi og lágmarkað rekstarkostnað.

Mat á innstreymi í kerfið

Auðveldari greining á grunnvatnsinnstreymi, rangt tengdum lögnum og svæðum þar sem kerfið er óþarflega ofhlaðið.

Sjálfvirk greining á stíflum

Rennslisgögn hjálpa til við að bera kennsl á flöskuhálsa og stíflur í kerfinu og meta hættuna á yfirflæði.

20250428_144843.jpg

Ef þú ert að undirbúa endurbætur, glíma við stíflur og yfirflæði eða þarft betri gögn um fráveitukerfið þitt?

 

Hafðu samband og við skoðum málið með þér.

bottom of page