top of page

Vatnsgæði og Laser Diagnostic Instruments hefja samstarf

  • Writer: Björgvin Rúnar Þórhallsson
    Björgvin Rúnar Þórhallsson
  • Nov 4, 2024
  • 1 min read

Vatnsgæði ehf. hafa skrifað undir samstarfssamning við Laser Diagnostic Instruments (LDI), framúrskarandi framleiðanda hátæknibúnaðar til greiningar á olíumengun í vatni. Samningurinn markar tímamót fyrir Vatnsgæði og gerir okkur kleift að bjóða upp á nýstárlegar lausnir sem styrkja mælingar og eftirlit með vatnsgæðum á Íslandi.



Samstarf sem styður við umhverfisvernd

Markmið samstarfsins er að koma með tækni sem styrkir íslenskt samfélag í baráttunni gegn mengun og stuðlar að bættu eftirliti með vatnsauðlindum. Lausnir LDI henta sérlega vel í iðnaðarhöfn, fráveitukerfi og vatnsverndarsvæði þar sem nákvæmni og hraði eru lykilatriði.

„Við hjá Vatnsgæðum erum stolt af því að hefja samstarf með Laser Diagnostic Instruments,“ segir Sindri Bjarnar hjá Vatnsgæðum. „Þessi samningur gerir okkur kleift að bjóða viðskiptavinum okkar lausnir sem eru í fremstu röð og henta vel fyrir íslenskar aðstæður.“


Hvað þýðir samstarfið?

Sem samstarfsaðili LDI mun Vatnsgæði:

  • Dreifa og samþætta tækjabúnað LDI fyrir íslenska markaðinn.

  • Veita uppsetningu, þjónustu og viðhald á búnaði.

  • Aðlaga lausnir að sérstökum þörfum viðskiptavina með íslenskar aðstæður í huga.



Aukin áhersla á sjálfbærni og tækni

Með þessum samningi mun Vatnsgæði styrkja stöðu sína sem leiðandi á sviði vatnsgæðamælinga og umhverfislausna. Lausnir LDI eru ekki aðeins tæknilega fullkomnar heldur einnig mikilvægt tæki til að stuðla að sjálfbærri auðlindastjórnun.


Hafið samband fyrir nánari upplýsingar

Við hvetjum fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög sem hafa áhuga á lausnum frá LDI að hafa samband við okkur til að fá frekari upplýsingar.


Saman tryggjum við hreinna og sjálfbærara umhverfi!

 
 
 

Comentarios


Skráðu þig á póstlistann hjá okkur

Takk fyrir skráninguna

Vatnsgæði ehf

Tunguháls 10

110 Reykjavík, Iceland

+354 555 0060

© 2024 Vatnsgæði ehf

bottom of page